Velkomin á Vettvang.
Hér er vettvangur umræðu og vangaveltna um menningu, stjórnmál og ýmislegt annað sem kann að leita á huga þeirra sem hér skrifa. Síðan er kostuð af ritstjóra hennar og er engum háð.
Ritstjóri Vettvangs er Sigurður Ólafsson.
Vefstjóri Vettvangs er Hjörtur Einarsson.
Vettvangur fer rólega af stað en fyrst um sinn hafa eftirfarandi stungið niður penna á síðunni:
Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur
Bjarki Valtýsson, menningarfræðingur
Hjörtur Einarsson, þýðandi og íslenskufræðingur
Sigurður Ólafsson, stjórnmálafræðingur
Sverrir Jakobsson, sagnfræðingur
Allt gott efni sem tengist umræðu um menningu eða stjórnmál er vel þegið og má senda á ritstjóra síðunnar.
Leitast er við að birta einungis myndir á vefnum sem undanþegnar eru höfundarrétti og þess vegna eru þær flestallar sóttar á Creativecommons.org vefinn en þar er safnað saman efni sem leyfilegt er að birta, svo lengi sem það er ekki í gróðaskyni.
