Einmitt boltinn en ekki maðurinn
19.05.2010 - Sigurður Ólafsson
Það er einhver herfilegur misskilningur í gangi gagnvart þeim sem leyft hafa sér að hafa áhyggjur af því að listi sem boðar ekkert nema grín fái 40% atkvæða kjósenda í Reykjavík. Nú síðast hjá Karli Th. Birgissyni í morgun og Sigurjóni Kjartanssyni í gær.

Báðir taka þeir gagnrýni á Besta flokkinn þannig að verið sé að ráðast á fólkið þar. Ég veit ekki um aðra, en ég er alla vega hjartanlega sammála þeim báðum um að fólkið á lista Besta flokksins er prýðisfólk og Reykjavík yrði fengur að liðsinni þeirra við stjórn borgarinnar næstu árin.

» Meira

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=388: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Ég bið þín en ég ætla að segja nei
23.02.2010 - Sigurður Ólafsson
Ég ætla að biðja kærustunnar minnar, leggja mikið á mig til að undirbúa brúðkaup og veislu, fara upp að altarinu en þá ætla ég að segja nei. Bara til að ítreka andstöðu mína og ýti þar með málinu út af borðinu í eitt skipti fyrir öll.

Einhvern veginn svona viturleg er vegferð VG í umsóknarmálinu um ESB. Myndi kærastan manns ekki kannski fara að líta í kringum sig eftir einhverjum öðrum eða alla vega leggja til að giftingunni yrði sleppt ef að planið lítur svona út? Verst bara að allir hinir biðlarnir eru enn þá ókræsilegri.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=381: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Voða púkó
29.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Það þykir voðalega púkó og dæmi um hvað maður sé hlægilega hysterískur ef maður bendir á staðreyndir um áhrif ofbeldisefnis í bíó og tölvuleikjum á upphafningu ofbeldis meðal óharðnaðra sálna.

En ég ætla að vera púkó og freistast til þess að leiða hugann að slíkum pælingum þegar ég les svona fréttir.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=379: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Rauða nælan
27.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Hvað er það sem gerir Mörð Árnason hæfastan allra landsmanna til þess að leiða starf flóttamannaráðs? Slangurorðabókin?

Eða kannski yfirburðaþekking Marðar á málefnum flóttamanna, menntun á því sviði eða áralöng starfsreynsla? Ekki man ég til þess. Hvað ætli það sé þá? Gæti það verið að rauða Samfylkingarnælan í jakkaboðungnum geri hann sjálfkrafa hæfastan til að fjalla um málefni flóttamanna í augum Árna Páls Árnasonar?

Þetta er flokkurinn sem stundum boðaði endalok pólitískra ráðninga meðan hátt var látið í stjórnarandstöðu. Sérstaklega lítið hefur farið fyrir slíkri breytingu til batnaðar í félagsmálaráðuneytinu. Fróðlegt væri líka að vita hvort að fleiri málefni en þau er varðar flóttamenn njóti álíka kjara að þar þurfi nefndarmenn að vinna vinnuna sína launalaust. Allt ber þetta merki fremur takmarkaðri virðingu fyrir viðkvæmu en mikilvægu málefninu.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=377: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Bara ef kemst upp um mann
27.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Þegar maður fremur lögbrot er nóg að vita bara ekki af því að hlutirnir eru ólöglegir og ef að lögbrotið kemst síðan upp, að endurgreiða þá bara það sem tekið var án leyfis.

Þetta er alla vega sýn Ásbjörns Óttarssonar á réttlæti. Hann ætlar ekki að segja af sér þingmennsku og hann nýtur fulls trausts sjálfstæðismanna sem fulltrúi í viðbragðsnefnd þingsins við rannsóknarskýrslunni stóru. Það er traustvekjandi, eða hitt þó heldur, að hafa Ásbjörn þar: mann sem ætlar að viðhafa það viðhorf gagnvart stórbrotamönnunum að þeim fyrirgefist allt, bara ef þeir vissu ekki að þeir voru lögbrjótar og að þeir megi sleppa án sektar eða straffs, bara ef þeir borga til baka ef vera skyldi að upp kæmist upp lögbrotin.

Svona virka reyndar lögin ekki fyrir okkur hin en það er sjálfsagt önnur saga. Það er gaman að sjá hvað Sjálfstæðisflokkurinn hefur iðkað mikla siðbót frá hruninu.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=375: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Réttmæt ályktun VG um RÚV
22.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Hvað í ályktun VG um RÚV lýsir svona mikilli ,,fádæma vanþekkingu" eða er svona ,,meiðandi fyrir starfsfólkið", eins og stjórn RÚV vill meina? Er það ekki hárrétt að það sé svívirðilegt að útvarpsstjóri RÚV keyri um á ókeypis jeppa og þiggi 18 milljónir í árslaun þegar að stofnunin sveltur? Er það ekki einmitt starfsfólki RÚV í hag að gagnrýna slíkt bruðl?

Átti kannski að standa ,,meiðandi fyrir jeppastjórann" en hitt var látið standa af því að það lúkkaði betur? Ætli það sé nefnilega ekki fyrst og fremst ,,meiðandi fyrir starfsfólkið" að vera rekið á meðan útvarpsstjórinn heldur sínum ráðherralaunum og sínum ókeypis jeppa? Það hefði maður alla vega haldið.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=369: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Sumir mega beita ofbeldi
21.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Nú kemur fram fólk sem hneykslast á því að einstaklingar sem valda öðrum varanlegri örorku með barsmíðum og ráðast inn á og trufla störf löggjafarsamkundunnar séu kærðir. Undir liggur að það megi beita ofbeldi og trufla störf Alþingis, ef að manni sjálfum finnst málstaðurinn réttur. Þetta er raunar sama ofbeldisréttlætingin og forsvarsmenn Búsáhaldabyltingarinnar svokölluðu héldu oftar en ekki fram, til dæmis þegar ráðast átti inn á lögreglustöðina og ná í mann sem handtekinn hafði verið fyrir að brjóta lög.

Nú væri gott að fá lista yfir það hjá málssvörum ofbeldismanna hvenær nákvæmlega má beita ofbeldi og yfirgangi í þágu málstaðarins og hvenær ekki. Einnig væri gott að fá lista frá sama fólki yfir það hvaða lög má brjóta, að þeirra mati, og hvaða lög ekki.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=367: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Bjóðum þúsund Haítí-búum til Íslands
14.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Það er frábært að björgunarsveitin sé að hjálpa til við að greiða úr hörmungunum sem dunið hafa yfir Haítí. Aldrei skal gert lítið úr því. Við skulum samt fara varlega í að taka við of miklu hrósi utan úr heimi, sérstaklega ef litið er á stóru myndina. Staðreyndin er nefnilega að forrík þjóð, sem um stundarsakir er ekki jafnforrík og hún var, ákvað að eitt af hennar fyrstu verkum væri að skera niður peninga til þróunarsamvinnu. Þetta er þjóðin sem gefur nánast öllum úr hópi þeirra örfáu flóttamanna sem leita hælis á Íslandi höfnunarstimpil og senda þá öfuga til baka.

Rústabjörgunarsveitin vinnur frábært starf. En miklu betur má ef duga skal. Hættum ósmekklegu sjálfsvorkuninni um að við séum fátæk þjóð. Haítí-búum mun ekki duga það eitt að vera bjargað úr húsarústum. Einhverjir þeirra munu þurfa skjól erlendis því að Haítí verður lengi að jafna sig. Bjóðum þúsund þeirra hæli á Íslandi. Sýnum í verki að við trúum því ekki í alvörunni að Ísland sé verst leikna land í heimi.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=361: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Áfram Gísli Marteinn
13.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Borgarstjórnarkosningar í Reykjavík eru kannski ekki efst á forgangslista höfuðborgarbúa þessa dagana. En prófkjörin eru komin á fullt og þá vonar maður að í efstu sætunum í hverju og einu þeirra lendi fólk sem hefur skýra og framfarasinnaða mynd í hausnum um raunverulega borgarmenningu. Til dæmis vona ég að Gísla Marteini Baldurssyni gangi vel í prófkjöri sjálfstæðismanna. Gísli Marteinn hefur ýmsar skoðanir sem ég get seint tekið undir en þegar kemur að hans skilgreindu stefnu á framtíð Reykjavíkur þá get ég ekki annað en hrósað honum. Hann hefur lagt sig fram um að mennta sig í borgarfræðum og móta sér eigin heildarsýn á borgarmynd framtíðarinnar. Það er sýn sem ég get að flestöllu leyti tekið undir.

Við þurfum á fólki eins og honum að halda úr öllum flokkum til að berjast við framsóknaröfl allra fylkinga sem vilja leggja stein í götu spennandi Reykjavíkur, t.d. með því að hindra för flugvallarins úr Vatnsmýri og byggingu samgöngumiðstöðva sem gegna svipuðu hlutverki og landnemabyggðir á hernumdum svæðum - eru til að styrkja pólitíska stöðu en eru annars upp á punt.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=357: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

Hvaða misskilning?
11.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Steingrímur J. er út um allt að leiðrétta þann ,,misskilning" að Íslendingar ætli sér ekki að borga. Hvaða misskilning, spyr maður þegar að almennur bloggrúntur er tekinn. Margir virðast nefnilega halda að bylgja nokkurra jákvæðra leiðara muni leiða til þess að við þurfum ekki að borga neitt. Gleyma því að valið stendur á milli þess að snúa aftur að einhliða fyrirvörum í haust, sem væntanlega þarf þá að semja aftur við um við Breta og Hollendinga, eða samþykkja samning sem meirihluti alþingismann stóð að.

Umræðan er raunar orðin álíka og fyrir hrun. Líkt og þá, handveljum við jákvæð álit fólks úti í heimi og höldum því á lofti innanlands okkar stöðu til stuðnings. Álit sem oft virðist byggja á óskhyggju eða misskilningi. Líkt og þá, eru síðan þeir sem bæði innanlands og utanlands leyfa sér að efast kallaðir úrtölumenn og að þeir ,,tali ekki fyrir hagsmunum Íslands" þegar þeir reyna að gæta varkárni. Svona var talað um fólkið sem efaðist um útrásina, það voru fýlupúkar sem voru að ,,tala niður krónuna", voru bara öfundssjúkir og jafnvel hreinlega illa innrættir Íslandsfjendur.

Það blasir ekki beinlínis við að við höfum mikið lært af undanförnum misserum.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=355: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook