Danskur kjósandi
18.11.2009 - Sigurður Ólafsson

Ég skal alveg gangast við ákveðnum nördaskap þegar kemur að stjórnmálum og kosningum. Hef haft óeðlilega mikinn áhuga á fyrirbærinu, allt frá barnsaldri. Ég man eftir að hafa haldið með Alþýðubandalaginu þegar ég var lítill og fagnað innra með mér þegar að vinstri stjórn Steingríms Hermannssonar var mynduð 1988. Ég var tíu ára. Lesendur mega sjálfir taka afstöðu til þess hvort þeim þyki ríkisstjórnarmynstur vera eðlilegt hugðarefni tíu ára barns. Sjálfur er ég ekki viss.

Þessi áhugi hefur ekkert minnkað með árunum og það var í takt við allt annað að ég fylltist nánast lotningu og innri fögnuði þegar að ég opnaði póstkassann hér einn daginn og við mér blöstu kosningakort og það rifjaðist þá upp fyrir mér að ég hefði kosningarétt í sveitastjórnarkosningunum hér í Danmörku.

Mér finnst það nánast vera skylda mín að reyna að setja mig inn í þjóðmálaumræðuna, eins og ég get, á þeim stöðum þar sem ég bý. Ég arkaði alltaf samviskusamlega niður á aðaltorg Aix-en-Provence meðan á búsetu minni þar stóð og keypti vikulega nýjasta heftið af Nouvel Obs og reyndi svo að stauta mig fram úr helstu viðburðum vikunnar með hjálp orðabókar. Jafn vel reyndi ég að fylgjast með í Svíþjóð, varð mér út um kynningaráskrift eftir kynningaráskrift af Dagens Nyheter (sem ég var svo alltaf nógu séður til þess að segja upp rétt áður en kynningunni lauk og raunveruleg áskrift átti að taka við, ég var jú fátækur stúdent). Svipað má segja um Chile og nú í Danmörku.

Hér í Danmörku hefur mér, með árunum, tekist að komast nokkurn veginn að pólitískri niðurstöðu. Hún er fyrst og fremst fengin með útilokunaraðferðinni. Hægri flokkarnir eru sjálfkrafa krossaðir frá. Þá er eftir vinstra sviðið, allt frá Enhedslistanum lengst, lengst, lengst til vinstri, yfir að Socialistisk Folkeparti (SF) og svo Sósíaldemókrötunum og loks inn að miðju þar sem Radikale Venstre eru.

Í eðlilegu árferði hefði ég talið Enhedslistann dámörgum skrefum of langt til vinstri fyrir mig og SF eru líka of evróskeptískir og sósíalískir fyrir minn smekk, stundum alla vega. Sósíaldemókratarnir væru kannski rökrétt val en að undanförnu hafa þeir, og nýlega einnig SF, tekið upp nánast sömu mannfjandsamlegu innflytjendapólitík og núverandi hægristjórn þannig að erfitt er að greina hversu mikið, ef þá nokkuð, skelfileg stefna dönsku stjórnarinnar í innflytjendamálum myndi batna með vinstri stjórn S og SF.

Útilokunaraðferðin hefur því nánast þvingað mig til þess að lítast einna skárst á Radikale Venstre, enda mega þeir eiga það að hafa staðist vel þrýsting annarra flokka og haldið í sína húmanísku stefnu gagnvart fólki af öðrum uppruna í Danmörku.

Þegar ég stóð í grunnskólanum í hverfinu í gær með kjörseðilinn í höndunum, bíðandi eftir því að röðin kæmi að mér að fara inn í kjörklefann, fylltist ég aftur lotningu og varð nánast meyr. Mér þótti allt í einu ofurvænt um lýðræðið og fylltist þakklæti yfir því að njóta þess heiðurs að fá að taka þátt í ákvörðunum um framtíðarskipan samfélagsins, meira að segja sem utanaðkomandi borgari. Þakklæti yfir því að búa í einu að frábærasta landi heims, kannski því frábærasta, og vera þátttakandi í mótun framtíðar þess.

Ég hafði kíkt lauslega á stefnuskrá þessara tveggja flokka sem ég gat mögulega hugsað mér að kjósa, Enhedslistann og Radikale Venstre (ekki mikil symmetrík í því kannski, en þannig var það nú bara samt). Og ég ákvað mig að lokum. Radikale Venstre skyldu fá mitt atkvæði. Þangað fóru því mínir krossar, einn á hvorn kjörseðil, annan gulan en hinn hvítan.

Ég gekk út í myrkrið að lokinni atkvæðagreiðslu, dálítið upprifnari en áður yfir þeirri hugmynd að ég væri virkilega hluti af samfélaginu sem ég lifi og hrærist í daglega. Kannski yrði atkvæði mitt lítil fjöður á vogarskálunum, t.d. í því markmiði að lágmarka áhrif niðurbrjótandi afla eins og Dansk Folkeparti. Fyrst og fremst var ég þó stoltur af því að fá, enn einu sinni, tækifæri til að nota rétt minn sem þegn í landi með virkt lýðræðiskerfi þar sem það er réttur fólks að vera sammála um að vera ósammála. Það er sko alls ekki sjálfsagður hlutur.

 

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=290 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu