Fyrstu tuttugu árin var starfsemin í blóma. Þetta var 1969-1989 og þá kallaðist garðurinn Kulturpark Plänterwald. Eftir að múrinn féll og Austur-Þýskaland var leyst upp, leystist starfsemi Kulturpark líka upp. Garðurinn komst undir stjórn Norbert Witte. Allt gekk vel í fyrstu en svo tók að halla undan fæti. Eftir rúman áratug var nýi skemmtigarðurinn lýstur gjaldþrota. Witte ákvað að reyna fyrir sér í Perú og flutti hluta tækjanna þangað. Það gekk ekki neitt og kallinn fór endanlega á hausinn. Til að redda fjárhagnum reyndi hann að smygla um 150 kg af kókaíni frá Perú til Þýskalands. Það mistókst og Witte fór í fangelsi. Hann losnaði úr haldi í fyrra og býr nú í hjólhýsi í garðinum.
Frá því 2002 hafa nokkrir aðilar haft áhuga á því að koma að rekstri skemmtigarðsins en allir hætt við, annað hvort vegna tregðu í samskiptum við yfirvöld eða vantrúar á veikburða efnahag Þýskalands. Á meðan heldur garðurinn áfram að drabbast niður.
Þessa sögu má fræðast betur um í heimildarmyndinni Achterbahn.