Ég hef yfirleitt ekki kært mig mikið um að heyra jólalög fyrr en í desember. Verð eiginlega fúll þegar ég heyrir jólalög í útvarpinu fyrir fyrsta í aðventu. Nú er hins vegar svo jólalegt orðið á Bergmannstrasse og víða annarsstaðar að ég fór að syngja um meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó á leiðinni heim úr búðinni áðan, hvar ég keypti m.a. Glühwein. Hér er þó enginn snjór.
Annars fórum við Jóhanna á Stasísafnið í dag. Nokkuð skemmtilegt, magnað að sjá njósnagræjurnar, t.d. myndavél dulbúin sem fuglahús.

mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=300 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired
Engin ummæli um þessa færslu