Glühwein
30.11.2009 - Hjörtur Einarsson
Þegar ég bjó í Amsterdam má segja að jólastemmingin hafi verið ræst þegar barirnir fóru að selja Glühwein. Reyndar er merkilega lítil jólastemming í Hollandi. Þeirra helsta hátið snýst í kringum Sinterklaas sem á afmæli í byrjun desember. En það er önnur saga. Í desember er sum sé hægt að gæða sér á Glühwein hér og þar og fá sér jafnvel piparkökur með því. Það sama er uppá teningnum í Svíþjóð. Þar er ágætis glöggmenning og t.d. nokkur stemming þegar Blossa-glöggin kemur í Sýstembólaget. Hér í Berlín er mikil Glühwein stemming og hægt að versla á börum og jólamörkuðum og jafnvel einhverjum útibásum á verslunargötum. Við eigum líka flösku af Nürnberger-glóvíni sem sennilega verður opnuð sem desert í kvöld.

Þessarar stemmingar hef ég saknað á Íslandi dáldið. Það er svo sem ekkert skrítið að það sé ekki sérlega inngróin glöggvarstemming á Íslandi, við höfum enda aðra hluti og góðgæti til að koma okkur í jólaskap. Jújú, auðvitað eru tillraunir íslendinga með að hita rauðvín í potti ásamt með exótískum kryddum efni í ágætis stemmingu. En slíkar aðfarir vilja stundum snúast upp í fillirí og vesen. Auk þess sem gæði glöggvarinnar verða oft æðimisjöfn.

Er engin stemming fyrir því að flytja inn og selja góða glögg í ríkinu, eins og t.d. Blossa-glöggina og Nürnberger-glóðvínið? Eru einhverjir barir í Reykjavík sem bjóða upp á jólaglögg á aðventunni? Spyr sá sem ekki veit?

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=308 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu