Móðir, sonur, líf og dauði
09.12.2009 - Vigdís Þormóðsdóttir
Vigdís Þormóðsdóttir skrifar hér umsögn um hina nýútkomnu skáldsögu Síðustu dagar móður minnar eftir Sölva Björn Sigurðsson:

Sölvi Björn Sigurðsson er ungur höfundur, en þrátt fyrir það reynslumikill. Síðastliðinn tæpan áratug hefur hann sent frá sér slatta af ljóðabókum, þýðingum og skáldsögum sem borið hefur mismikið á. Í ár er hlýtur þó að vera komið að því að Sölvi stimpli sig rækilega inn hjá almenningi, enda stekkur hann fram á sjónarsviðið með firnasterka skáldsögu um harminn, gleðina og endalok lífsins. Í stuttu máli fjállar bókin um þau Dáta og Evu, mæðgin sem búa saman á Spítalastíg í Reykjavík. Tilvera þeirra kollvarpast þegar að Eva greinist með ólæknandi krabbamein og er sagt að hún eigi aðeins fáa mánuði eftir ólifaða. Sonurinn Dáti, atvinnulaus og einhleypur drykkjubolti á fertugsaldri sem flutti aftur heim til móður sinnar eftir mislukkað ástarsamband, kemst á snoðir um óhefðbundna krabbameinsmeðferð hjá lækninga- og líknarsetri í Amsterdam. Þau mæðginin flytja sig því um set til Hollands til þess að mæta örlögunum þar.

Sagan gerist sumarið og haustið 2008, á tímabili sem reynist ekki einasta stormasamt fyrir þau Evu og Dáta heldur íslensku þjóðina alla. Vera mæðgininna í Amsterdam er lauslega samofin íslenska bankahruninu og veikindiferli Evu endurspeglar að mörgu leyti þær hugsanir og tilfinningar sem eflaust bærðust með mörgum íslendingnum á þessum tíma. Ferðin hefst á kæruleysi, skemmtunum og ótæpilegri neyslu “spesdrykkja” (sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá Evu) en eftir því sem líður á ágerast veikindin og áhyggjurnar. Í samræmi við þessa framvindu er frásögnin í fyrstu létt og leikandi, en þyngist því lengra sem lesið er.

Persónur þeirra Evu og Dáta eru afar vel skapaðar og standa lesandanum nánast ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Aðrar persónur bókarinnar eru almennari og óljósari, enda þjóna þær margar helst þeim tilgangi að varpa betur ljósi á einhvern þátt sambands þeirra mæðgina. Bókin er sögð frá sjónarhóli Dáta, og fá lesendur því greinagott innlit í tilfinningar hans til móður sinnar; að auki leika minningar hans um samband þeirra talsverðan þátt í að varpa ljósi á þær samskiptaflækjur sem eiga það til að koma upp á milli þeirra. Dáti finnur lífstilgang í því að tryggja að síðustu dagar Evu séu henni sem ánægjulegastir. Hann leggur mikið á sig til þess að ná þessu markmiði, en með erfiði sínu kemur hann til skila einlægu og elskandi inntaki sögunnar.

Stíllinn er lipur og auðlæsilegur og það verður ekki frá Sölva tekið að hann hefur einstakt lag á að kitla hláturtaugar lesandans með frumlegri og skapandi tungumálsnotkun. Sérlega má hafa gaman af nýyrðasmíði Evu; með fáeinum orðskrípum tekst höfundi vel að koma til skila lífsgleði, hugmyndaflugi og lífssýn persónunnar.

Þrátt fyrir þungt og sorglegt viðfangsefni galdrar Sölvi fram ótrúlegan óð til lífsins, sem virðist einmitt rammast þegar það er nánast komið á endastöð. Þegar öllu er á botninn hvolft er Síðustu dagar móður minnar bráðskemmtileg, hlý og fyndin saga um lífið, dauðann og innilegt en stormasamt samband móður og barns. Óhætt er að mæla með þessari lesningu fyrir hvern þann sem átt hefur móður

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=320 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu