55 þúsund Íslendingar vilja draga viðreisn landsins enn á langinn, leika sér að eldinum með orðspor Íslands og hættuna á mjög alvarlegri milliríkjadeilu og mun svæsnari þumalskrúfum en hingað til hefur verið beitt. Þetta er hópur sem virðist telja að útlendingar hafi eitthvað á móti Íslandi og af málflutningnum að dæma er þetta yfirleitt fólk sem virðist kjósa lausnina frægu ,,eitthvað annað" þegar kemur að framtíðarhorfum Íslands.
Af málflutningi þeirra að dæma á ekki að fara inn í ESB, helst ekki fylgja áætlun IMF, ekki borga Icesave. Samt á að fá lán fyrir öllu, kannski frá norskum þingmanni einhvers miðflokks, ef ekki þar þá bara einhvers staðar annars staðar frá.
Ef forsetinn segir nei við frumvarpinu fer þessi stjórn frá og þá komast fulltrúar þessara 55 þúsund Íslendinga að með sínar hrunlausnir. Kjósendurnir sem aftur telja Sjálfstæðisflokkinn bestan allra flokka, samkvæmt könnunum, fá þá bara það sem þeir eiga skilið.
Ef þetta endar í öðru hruni, þá þýðir ekkert aftur fyrir meirihluta íslenskra kjósenda að skjóta sér enn undan ábyrgð, hafandi lifað góðærið í botn en hlaupa síðan í felur þegar að allt hrynur og segja að þetta hafi bara verið einhverjir 30 manns. Nú verða 55 þúsund manns að standa við stóru orðin. Takið þá bara við þessu og stýrið þessu glæsilega í höfn með ykkar frábæru alþjóðlegu samningamenn, norsku þingmenn með 2000 milljarða og kúlulánadrottningar, vafningakónga, heimsendaspámenn og sjálfskipaða snillinga í hreyfingum í ríkisstjórn. Verði ykkur að góðu.
mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=336 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired
Engin ummæli um þessa færslu
