
Í pistli á síðu sinni hefur hann að vísu yfir formála um að hann réttlæti ekki ofbeldisverk. Þessi formáli er þó fremur haldlítill, sér í lagi vegna þess sem á eftir kemur. Ögmundur virðist þar skeita meiru um hagsmuni þeirra sem ráðast að samstarfsfólki hans og fyrrum félagsmönnum í BSRB en þeim sem fyrir árásunum urðu við sín skyldustörf.
Segir árásarfólkið hafa gripið til árása sem séu óafskanlegar ,,undir öllum venjulegum kringumstæðum". Það var nefnilega það. Árásir eru sem sagt ekki óafsakanlegar. Þær eru bara óafskanalegar ,,undir öllum venjulegum kringumstæðum".
Ögmundur ætlar þá væntanlega líka að sýna sama skilning ef ráðist er að opinberum starfsmönnum í pólitískum tilgangi sem honum er ekki eins hugnanlegur. Myndi sýna sama skilning ef að málsvarar kvótakerfisins, fólk haldið innflytjendaandúð eða aðrir þeir sem ekki tala máli Ögmundar myndu grípa til sömu ráða. Það getur nefnilega ekki verið að Ögmundi finnist að hann megi vera einn um það að túlka hvenær ,,venjulegar kringumstæður" ríkja ekki og taka verði þá vægar á ofbeldisbrotum en ella.
Eins auglýsi ég eftir því, eins og áður, hvað það er nákvæmlega sem er rangt við það að fólk sem gengur of langt í mótmælaaðgerðum hlýti sömu lögum og við hin? Má fólk þá líka sleppa því að borga stöðumælasektir sem það fékk daginn sem að allt hrundi með þeim rökum að fyrst eigi að dæma útrásarvíkingana og svo skuli ég borga stöðumælasektina? Eru það sem sagt gild rök að fyrst að útrásarvíkingar sleppa kannski þá eigum við hin líka að gefa skít í réttarríkið?
Er það, með öðrum orðum, þannig að það á að fara flokka dómsmál réttarríkisins í einhverja pólitíska röð alveg þangað til að mjög flóknum og viðamiklum rannsóknum á meintu fjárglæpum auðmanna (rannsóknum sem Eva Joly hefur, nota bene, bent á að geti tekið mörg ár og sé mikilvægt að vanda til) lýkur með dómi?
Kannski vill Ögmundur svoleiðis land. Ég vil það ekki. Ég vil land þar sem að dómskerfið starfar eftir lögum og reglum. Ekki pólitísku mati á því hvenær maður má beita þingverði og lögreglumenn ofbeldi, bara af því að það ríkja ekki ,,venjulegar kringumstæður".
