Það er ekkert sérstaklega notaleg tilfinning að búa á 14. hæð í blokk í Chile, landi þar sem stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur reið yfir fyrir nokkrum áratugum. Besta aðferðin til að takast á við það er að hugsa sem minnst út í það. Næstbesta aðferðin er að trúa því sem Chilebúar segja að byggingar í Chile lúti ströngustu skilmálum þegar kemur að því að búa til jarðskjálftaheld mannvirki.
Það virðist annars vera satt. Svo til árlega ríða risaskjálftar yfir einhverja hluta Chile og yfirleitt er mannfall ekkert, í mesta lagi mjög lítið. Einu sinni vorum við stödd í Santiago og fréttum það fyrst á íslenskri vefsíðu að jarðskjálfti upp á 6,5 hefði átt sér stað nokkuð norðar í landinu. Chilebúar tóku því nánast sem hversdagslegum hlut.
Jarðskjálftinn í morgun er hins vegar ekki hversdagslegur hlutur. Hann er gríðarlegur. Það segir samt sitt um styrk chileönsku þjóðarinnar að ekki hafi farið enn verr. Chilebúar kunna að takast á við náttúruhamfarir, geta sett þrautþjálfaðar áætlanir í gang og byggingarnar standast flestar þennan ógnarmikla hristing.
Hugurinn er hjá vinum mínum í Talca í Chile og víðar um landið. Ég er nokkuð rólegur miðað við aðstæður, vitandi það að Chilebúar eru viðbúnir.
mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=383 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired
Engin ummæli um þessa færslu
