Er flipp best?
18.05.2010 - Sigurður Ólafsson
Þegar að Jón Gnarr hætti í Tvihöfða á sínum tíma breyttist hann fljótlega eftir það í kristilegan íhaldsmann og fór að skrifa leiðinlegustu og forpokuðustu bakþanka sem birst hafa í sögu Fréttablaðsins og þó víðar sé leitað í fjölmiðlaflórunni. Hann var farinn að predika ströng siðalögmál, eins og að sleppa kynlífi fyrir hjónaband, og var farinn að deila með landsmönnum umvöndunum sínum um mörg sín hjartans málefni á sömu mærðarlegu nótum og uppskrúfaður og veruleikafirrtur prestur í fámennum söfnuði.

Þetta var raunar svo yfirgengilegt að enn þann dag í dag veltir maður því reglulega fyrir sér hvort hann hafi í raun verið að taka djókið á nýtt og stærra plan, fokka í okkur öllum.

Besti flokkurinn virðist vera enn meiri snilld. Flokkurinn er pólitísk satíra en spurningin er bara hvort að liðið ætlar að segja ,,djók!" rétt áður en kosið verður og draga allt til baka eða hvort að það á að fara alla leið og dokúmentera það ferli þegar að yfirlýst hirðfífl fá traust kjósenda og komast í lykilstöðu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Það gæti, út af fyrir sig, verið athyglisvert. Kosturinn við Besta flokkinn er líka kostur hinnar pólitísku satíru. Þar leyfist mönnum að segja meira og þannig hefur það verið allt frá dögum hirðfífla við hirð konunga sem gátu gagnrýnt hluti undir því yfirskini að þau væru bara bjálfar og asnar. En hlutirnir komust samt til skila. Jón Gnarr hefur boðað ,,fíkniefnalaust Alþingi árið 2020" og ,,Lýðræði er ágætt en virkt lýðræði er best. Þess vegna viljum við það." Minnir á grínfrasa eins og ,,fíkniefnalaust Ísland árið 2000" og þvaður um virkt lýðræði sem þó hefur ekki verið sett fram í gríni heldur dulbúinni alvöru af veruleikafirrtum stjórnmálamönnum sem reyna að fá atkvæði með því að gera eins og Besti flokkurinn segir sjálfur: ,,við segjumst styðja það" og ,,viljum endilega taka þátt í að lofa því".

Við vitum nefnilega að svona er þetta, t.d. þegar að Dagur B. Eggertsson byrjar sínar langlokur sem enda einhvern veginn alltaf á sama stað og þær byrja þar sem alls konar innihaldslausir frasar um framtíðareitthvað og sæmræðueitthvað bíta í skottið á sjálfum sér. Eða þegar að Sjálfstæðisflokkurinn fer að skarta bleikum lit rétt fyrir kosningar og gerir lítið úr kjósendum með því að ljúga því að þeim að hann sé femínískur flokkur.

Hinir flokkarnir eiga erfitt með Besta flokkinn, það á maður reyndar sjálfur. Það er nefnilega fátt bjánalegra en að hlaupa apríl, vera sá sem ekki fattar djókið og móðgast og segir að þetta sé ekkert fyndið. Sérstaklega ef að allt verður klippt og skorið í heimildarmynd að lokum þar sem viðkomandi stjórnmálamaður fær ódauðlegar setningar, honum ekki í hag, sem sýnir hversu grunlaus og húmorslaus hann er.

Þess vegna er vandræðaleg stemning í kringum kosningarnar í Reykjavík núna. Menn halda að sér spilum, þykjast vera með á djókinu en eru samt ekki alveg vissir.

En má ekki alveg eins segja að þau tæpu 40% sem falla fyrir djókinu séu alveg eins að láta plata sig?

Segjum nefnilega sem svo að Besti flokkurinn sé ekki djók (nú er ég jafn óöruggur og allir hinir þegar ég skrifa þetta, hræddur um að fólk haldi að ég fatti ekki djókið). Þá má spyrja sig hvort fólk átti sig t.d. á því að það er ekki hægt að kjósa aftur á sveitastjórnarstiginu fyrr en að fjórum árum liðnum. Við hefðum svo gjarnan viljað það eftir allt grímuballið í kringum gamla, góða Villa, REI og Ólaf F. og það allt saman en það var ekki hægt.

Við erum því að tala um fjögurra ára langan brandara. Taka fjögur ár í kæruleysislega brandaranálgun á dagvistarmál, mál aldraðra, skipulagsmál, umhverfismál, 40 milljarða skuld OR, herfilegan niðurskurð á þjónustu við borgarbúa og stórfellt atvinnuleysi í höfuðborginni.

Sama hversu leiðinlega það hljómar þá er það samt sem áður þannig að þetta eru alvöru mál, nákvæmlega ekkert fyndið við neitt af þessu. Hversu fegnir eru til dæmis þeir núna sem að bera ábyrgð á 40 milljarða skuldinni hjá OR að þurfa ekki að svara spurningum um hana vegna þess að allur tíminn fer í að reyna að afkóða djókara og fylgjast með nýjasta flippinu þeirra?

Þeir fáu sem leyft hafa sér að tala á þessum nótum, að minna á að kosningar séu alvörumál, hafa fengið sömu rök í hausinn: ,,Er grínið í Besta flokknum eitthvað minna en í hinum flokkunum?", ,,Getur þetta orðið verra en það er?".

Kjósendur sem spyrja svona retórískra spurninga tala ekki af mikilli sjálfsvirðingu. Hverjum halda kjósendur að þeir séu að refsa með því að kjósa yfir sig grínframboð í höfuðborginni? Flokkunum? Já, kannski smá en þó bara að litlu leyti. Fyrst og fremst eru þeir að refsa sjálfum sér, það er nefnilega fólkið sjálft sem mun sitja uppi með þá fulltrúa sem það kaus næstu fjögur árin. Og er það þá í alvörunni þannig að fólki finnst það bara í góðu lagi að djókarar ætli bara að slá því upp í grín að taka á erfiðu ástandi næstu ára í höfuðborginni?

Þetta er dálítið eins og unglingur sem er frústreraður og heldur að hann sé að refsa foreldrum sínum með því að gefa skít í þá og helst gera eitthvað sem að fer verulega í taugarnar á þeim. Fattar ekki að allt sem maður gerir bitnar fyrst og fremst á manni sjálfum og fer kannski ekki eins mikið í pirrurnar á foreldrunum og maður heldur.

En ef það er virkilega val kjósenda að fjögurra ára ábyrgðarlaust flipp út í loftið sé skárra en flokkar sem raunverulega hafa sett fram stefnu í borgarmálunum (maður getur, upp að ákveðnu marki, skilið slíkt val) þá verða þeir líka að standa við það val sitt.

Það þýðir þá ekki að gera eins og gert var eftir hrunið mikla að horfa bara í hina áttina og segja að þetta hafi bara allt verið einhverjir 30 manns og hafi ekki haft neitt með það að gera að meirihluti kjósenda lagði blessun sína yfir ofurþenslu sem alltaf var varað við, stórfelld spjöll á náttúru Íslands, stríðsstuðning í Írak, einkavinavæðingu, klapp og hvatningu við sterapumpaða útrás, minni skatta og hærri lán. Allt var þetta gert með margfaldri blessun meirihluta íslenskra kjósenda og staðfest í kosningum eftir kosningar.

Ef að fólki finnst virkilega að stjórnmálamenn eigi fyrst og fremst að vera litríkir skemmtikraftar (það er mikil hefð fyrir því á Íslandi, manni verður t.d. hugsað til Vestmannaeyja) þá er það þeirra val. Og ég viðurkenni það fúslega að mörkin á milli flokka hafa það helsta útspil að ,,taka Pútín á þetta" og senda forystumanninn sinn í sjósund og kvikmynda afrekið og yfirlýsts grínflokks eru ekki endilega skýr.

Skapandi og frjótt listafólk Besta flokksins myndi áreiðanlega ekki standa sig verr í borgarstjórn en fólk sem segir okkur að kjósa sig af því að það er svo hraust og duglegt að synda í sjó. Þetta snýst hins vegar um nálgunina og hvort fólk sé virkilega til í að halda því til streitu allt inn í kjörklefann og svo næstu fjögur árin þar á eftir að það sé til að taka sénsinn á því að það sé skárra að hafa pólitíkusa sem hreinlega lýsa því yfir að þeim finnist leiðinlegt að pæla í leiðinlegum hlutum eins og viðfangsefnum sveitastjórnarmanna og ætli sé að gera allt til að komast undan því.

Segjum nefnilega svo að djókið vari fram yfir kosningar. Þá getur Besti flokkurinn nefnilega ekki djókað lengur. Þá er hann kominn í ábyrgðarstöðu, hvort sem honum líkar betur eða verr, og þá verða það ekki bara meðframbjóðendur sem vilja færa hlutina niður á alvarlegt plan gagnvart erfiðri stöðu eftir fjármálahrun heldur fyrst og fremst umbjóðendur virðulegra borgarfulltrúa Besta flokksins. Og þá skiptir það máli fyrir almenning hvað fulltrúar þess standa fyrir þegar þeir eru hættir að djóka.

Það er nefnilega alveg rétt sem heyrst hefur úr einstaka skotum fólks sem tekur þá áhættu að spekúlera út frá alvörunni sem gæti hlotist af brandaranum: Það er óneitanlega ,,dálítið 2007" að segja bara að stjórnmál séu leiðinileg, að það sé rosa hallærislegt að hafa einlægan áhuga á því að taka samfélagsmál alvarlega með þátttöku í starfi stjórnmálaflokka og að best sé að gefa skít í þetta allt saman, halda bara partí og treysta á að leiðinlega fólkið geri bara allt þetta leiðinlega meðan að við tölum frekar um styttu af Báru bleiku en 40 milljarða skuld Orkuveitunnar.

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=386 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu