Það er einhver herfilegur misskilningur í gangi gagnvart þeim sem leyft hafa sér að hafa áhyggjur af því að listi sem boðar ekkert nema grín fái 40% atkvæða kjósenda í Reykjavík. Nú síðast hjá Karli Th. Birgissyni í morgun og Sigurjóni Kjartanssyni í gær.
Báðir taka þeir gagnrýni á Besta flokkinn þannig að verið sé að ráðast á fólkið þar. Ég veit ekki um aðra, en ég er alla vega hjartanlega sammála þeim báðum um að fólkið á lista Besta flokksins er prýðisfólk og Reykjavík yrði fengur að liðsinni þeirra við stjórn borgarinnar næstu árin.
Karl talar um að við eigum að ,,fara í boltann en ekki manninn". Það er einmitt málið. Það er ekkert að fulltrúum Besta flokksins, hins vegar vantar öll málefnin. Alveg sama hversu oft Karl Th. Birgisson segir ,,kommon" yfir því hvað það sé leiðinlegt og ókúl í hans augum að pæla í því að fólk fái umboð kjósenda án þess að hafa verið nokkurn tíma rukkað um það í alvörunni hvað það ætlar að gera, þá er það samt þannig að það hlýtur að skipta máli, hvort sem framboð titla sig sem ,,grínframboð" eða ekki, að fólk fái að vita hvað þetta fólk ætlar í alvörunni að gera. Vegna þess að núna lítur út fyrir að tími grínsins um neðanjarðarblokkirnar og tollhliðin dugi bara fram á kjördag hjá verðandi borgarfulltrúum Besta flokksins.
mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=388 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired
Engin ummæli um þessa færslu
