Rás eitt heldur stöðu sinni sem flaggskip Ríkisútvarpsins. Í gær var til að mynda flutt frábær dagskrá um hryllilegu fjöldamorðin í Katyn-skógi í Póllandi sem böðlar Stalíns frömdu vorið 1940. Þeirra atburða átti að minnast á sögulegan hátt fyrr í vor en það endaði á flugslysinu skelfilega þar sem forseti Póllands var meðal hinna látnu. Góður þáttur í gær rakti alla þessa atburði og ræddi einnig kaldhæðni örlaganna í tengslum við flugslysið á dögunum og það sem sumir kalla nú bölvun Katyn-skógar.
Á eftir fylgdi svo endurflutningur á uppfærslu Útvarpsleikhússins frá 1993 á pólskum fléttuþætti sem byggður er á bréfaskiptum fanganna sem síðan var slátrað eins og kjúklingum á færibandi eftir margra mánaða þrælavist þar sem vonin ein um að losna hélt í mönnum lífi og vitglóru.
Glæsilegt, Rás eitt!
mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=391 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired
Engin ummæli um þessa færslu
