Stefnan komin - fínt!
26.05.2010 - Sigurður Ólafsson
Stundum er það þannig að þeir sem mest gera grín að öðrum og heimta að allir aðrir ,,hafi húmor fyrir hlutunum" eiga sjálfir erfiðast með að hafa húmor fyrir því þegar að gagnrýnin beinist að þeim.

Þannig hafa málsvarar málefnaleysis Besta flokksins komið fram undanfarið og haft uppi þá málsvörn að það sé leiðindakvabb og hroki að fara fram á það að flokkur sem kannski nær hreinum meirihluta í Reykjavík hafi einhverja stefnu. Þetta sé nefnilega súrrealískur flokkur, póstmódernískur, og ég veit ekki hvað og hvað, og það þurfi ekkert að rukka hann um stefnu. Það sé hvort sem er svo asnalegt að hafa stefnu í stjórnmálaflokki af því að hún sé alltaf svikin hvort sem er.

Það sé bara raunar, yfirhöfuð, hluti af einhverju illa innrættu plotti að gagnrýna Besta flokkinn á nokkurn hátt. Hér og annars staðar hefur hins vegar verið bent á það undanfarið að þetta er hefðbundið tal þeirra sem í yfirlæti sínu tala um að þeir séu svo miklu betur fallnir til þess en allt þetta ömurlega hefðbudna lið til þess að gera hlutina. Það er nefnilega þannig að fólk sem þannig talar endar sjálft, samt sem áður, að lokum í sömu förunum.

Við munum t.d. hvað Borgarahreyfingin lýsti því yfir af miklum hroka fyrir síðustu Alþingiskosningar hvað fólkið þar væri siðferðilega á miklu hærra plani en aðrir pólitíkusar, svo maður tali nú ekki um hvað allir aðrir en fólk þar á bæ voru miklir vitleysingar.

Það var áður en sá flokkur hóf sín gráu plott inni á þingi með gömlu hrunflokkunum og áður en þrír af fjórum þingmönnum flokksins ákváðu, af taumlausri lýðræðisást, að hundsa tilmæli baklands síns, fólksins í hreyfingunni þeirra, að segja af sér vegna svika og trúnaðarbrests. Þau stofnuðu bara kjarnaflokk á þingi, sögðu bara skilið við fjöldahreyfinguna á bak við sig. Vel klædda liðið inni á þingi henti bara ,,Borgara"-forskeytinu út í buskann (einhver myndi kalla það táknrænt), var bara siðferðislega of gott fyrir þetta lið sem stóð að baki því og tryggði því kosningu.

Nú er til dæmis grínflokkurinn, sem átti að vera of súrrealískur og póstmódernískur fyrir alvöru stefnu, samt bara kominn með stefnu. Hún er hér. Hvað segja málsvararnir nú: eru þetta ekki svik við anarkisma, súrrealisma, póstmódernisma og hvað var það aftur fleira?

Og þetta er fín stefna. Reyndar allt mál sem flestallir geta skrifað undir, nokkrar hæpnar tillögur kannski en samt ekkert hæpnari en t.d. ævintýraland Framsóknarflokksins í Elliðaárdal (eða hvað það nú var). Dálítið mikið svona ,,verum góð við börn" og ,,höfum fallegt í kringum okkur". En ekkert verra en froðan víða annars staðar, þó hún virðist, vægast sagt, ekki sérlega úthugsuð. En það má kannski ekki gagnrýna það heldur.

Ef þetta er alvöru hjá Besta flokknum núna, þá er ekkert fáránlegra að kjósa hann en aðra flokka. Það sem um var beðið - einhver alvöru málefni - er komið fram. Gott mál. Nú er kannski hægt að fara að ræða þennan flokk af einhverri alvöru. Eða má það kannski ekki heldur núna? Er það enn þá of ,,leiðinlegt"?

Við skulum nefnilega endilega hafa ,,nýja Ísland" gagnrýnislaust. Og fyrst og fremst fyndið. Var það ekki einmitt orsök hrunsins, of mikil gagnrýni og ekki nógu mörg partí? Hvar stóð það aftur í Skýrslunni? Einhvers staðar aftarlega, sjálfsagt.

Ætli Besti flokkurinn af einhverri einlægni að fylgja þessari stefnu eftir í kjölfar kosninga, er þá kannski kominn tími til þess að fjölmiðlamenn landsins fari að gera eitthvað í vinnutímanum sínum? Hætti að gefa Besta flokknum, einum flokka, frí frá gagnrýninni umræðu? Að fjölmiðlamenn landsins hætti að kóa með væli Besta flokksmanna og stuðningsfólks þeirra um að verðandi borgarfulltrúar Besta flokksins eigi skilið að sleppa við önnur eins leiðindi og að þeir svari grundvallarspurningum um framtíð næstu fjögurra ára í Reykjavík.

Fari íslenskir fjölmiðlamenn af starfa af einhverri alvöru þessa síðustu daga fyrir kosningar og átti sig á því að hlutverk þeirra er ekki það eitt að ,,gera lífið skemmtilegra", þó það hafi verið aðalmálið 2007, þá má kannski búast við því að allir flokkar, líka Besti flokkurinn, verði krafinn alvöru svara við því hvað á að gera eftir kosningar í Reykjavík. Allir fari í gegnum sama hreinsunareldinn.

Ef að Besti flokkurinn stenst það próf þá á hann alveg eins skilið að fá fullt af atkvæðum næstu helgi og hver annar, gott ef ekki frekar en þeir flokkar sem t.d. hafa drekkt borginni í 40 milljarða króna skuldafen OR, ætla að byggja samgöngumiðstöðvar fyrir flugvöll sem á að fara (talandi um súrrealisma) og rústuðu borginni nýlega með Hringbrautarskrímsli.

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=393 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu