Ekki fleiri grínmeirihluta!
01.06.2010 - Sigurður Ólafsson
Mynd: creativecommons.orgÞað er gott að Besti flokkurinn er farinn að segja borgarbúum í Reykjavík eitthvað aðeins um það hvað hann ætlar að gera. Betra er seint en aldrei.

Kaldhæðni er góð en einlægni er líka nauðsynleg. Nú síðustu daga hefur loksins skinið í hana hjá Besta flokknum. Fulltrúar flokksins hafa einlæglega komið fram og viðurkennt að þeir viti ekkert hvað þeir ætli að gera, séu núna að læra og reyna að ákveða hvað á að taka sér fyrir hendur, meðal annars með því að gera sér grein fyrir stöðunni með hjálp embættismanna borgarinnar.

Það er eitthvað heilbrigt og auðmjúkt við þessa nálgun, þeir ætla að hlusta en ekki bara þjösnast áfram. Og hver veit, kannski það komi bara fram stefna einn daginn hjá þessum flokki þannig að þau sirka 35% borgarbúa sem kusu þetta fólk í blindni fái að vita fyrir hvað þetta fólk stendur. Enn vitum við lítið um það en kannski komumst við að því fljótt. Það sem þó hefur komið fram hljómar bara ágætlega - ósköp dæmigerð félagshyggja - og fólkið í Besta flokknum virðist upp til hópa vera geðugt og skinugt fólk sem alveg er treystandi fyrir stjórnun borgar.

Það er hins vegar spurning hvort það sé nú að kvikna ljós hjá Besta flokknum um það að þetta með að hlusta og læra og setja síðan eitthvað raunverulegt fram, hefði mátt gera fyrr. Til dæmis fyrir kosningar.

Kannski kemur hugmyndafræði út úr þessu öllu en hingað til hefur það verið með öllu óskiljanlegt þegar fjölmiðlar hafa talað um að handvalinn listi vina Jóns Gnarr meðal frægra Reykvíkinga og málefnalaus kosningabarátta þeirra sé einhver lýðræðisbylting. Hvað þá að selebrittíin hans Jóns séu einhvers konar dæmi um að hinn almenni borgari geti brotist fram af eigin rammleik og unnið stóra sigra í stjórnmálum.

Jón og félagar voru einmitt ekki einhver nóboddí af götunni. Það var einmitt frægðin sem gerði það að verkum að athyglin fór öll í fólkið og enginn taldi sig þurfa að pæla í málefnum.

Allt var það réttlætt með því að þetta væri ekki verra en hvað annað. Nú eru Jón og félagar hins vegar hættir að grínast og eru farnir að tala meira og meira eins og pólitíkusar með hverjum deginum sem líður. Á sunnudaginn fannst Jóni enn þá asnalegt að það þurfi að mynda einhverja meirihluta. Fyrir helgi voru allir gömlu flokkarnir sama tóbakið.

Núna er Besti flokkurinn samt kominn í meirihlutaviðræður. Það var allt í einu ekki lengur asnalegt. Og Samfylkingin er, einhverra hluta vegna, ekki sama tóbakið og allt hitt, í hugum Besta flokksins. Allt í einu er talað eins og það sé augljóst dæmi.

Þetta er, með öðrum orðum, að fara í nákvæmlega það far sem að ég leyfði mér að spá fyrir um nokkrum dögum fyrir kosningar hér á þessum fálesna vettvangi. Það er hægt að vera stórorður í kosningabaráttu um að allt verði gert betur en hjá vanhæfa fólkinu sem var. Svo þegar að alvaran skellur á þá áttar Besti flokkurinn sig á því að það þarf stefnu til að vera í stjórnmálum.

Og kjósendur hans, gagnrýna fólkið sem brenndi sig á heilu hruni (hélt maður alla vega), sættir sig við að hún komi fyrst fram núna þegar það er búið að kjósa flokkinn.

Nú fáum við þá kannski að vita á næstu dögum hver verður niðurstaða Besta flokksins á fundum sem aðrir hafa yfirleitt haldið áður en þeir leggja í kosningabaráttu eða kynna framboð sitt, til dæmis til að athuga hvort þeir eigi yfirhöfuð einhverja málefnalega samleið til að fara í gegnum slíka baráttu.

Hingað til hefur þótt of fýlupúkalegt og leiðinlegt að rukka þetta fólk um stefnu. En kannski fáum við núna á næstu dögum raunverulega að vita til dæmis hvort að fólkið innan Besta flokksins er málefnalega sammála um hluti eins og hvort það

eigi/eigi ekki að vinna að einkavæðingu eða útrás í orkumálum,

að það eigi/eigi ekki að hækka útsvarið,

að það eigi/eigi ekki að stefna áfram að brottnámi flugvallarins,

að það eigi/eigi ekki að skera niður grunnþjónustuna (og þá að hvaða sviðum),

að það eigi/eigi ekki að endurskoða húsnæðismarkaðinn í borginni (t.d. með því að virkja leigumarkaðinn),

að það eigi/eigi ekki að taka lán til að fjármagna átak í atvinnumálum,

að það eigi/eigi ekki að líta svo að á að ,,Reykvíkingar hafi valið einkabílinn"

að það eigi/eigi ekki að setja fram skýra skipulagsstefnu.

Besti flokkurinn hefur hingað til verið of skemmtilegur og fyndinn til að svara svona leiðindamálum og kjósendur hans of sármóðgaðir og hörundssárir til að virða viðlits gagnrýni á slíkt málefnaleysi.

Nú glittir hins vegar í að Besti flokkurinn verði hugsanlega loksins málefnalegt stjórnmálaafl. Nú hljóta Reykvíkingar að vilja vita hvort það er raunveruleg ástæða til að treysta því að það verði eitthvað að marka nýjan meirihluta í borginni.

Því að ef það er eitthvað sem að Reykjavík þarf ákkúrat ekki næstu fjögur árin, þá er það jafnmargir grínmeirihlutar og jafnmargir djókborgarstjórar og sátu á síðasta kjörtímabili.

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=397 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu